Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Tónbil, dúrtónstigar, taktsláttur, einfaldar laglínur í dúr, einfaldur hrynur, nótnalestur, nótnaritun.

Lýsing: Nemendur syngja lög og tónbilaæfingar, fara með hryn og æfa lestur í g- og f-lykli. Þá rita þeir niður eftir eyra einfaldar laglínur og einföld hryndæmi af svipuðum toga og lært efni. Allt efni er kynnt og undirbúið í kennslutímum en nemendur þurfa að æfa sig reglulega heima og gildir það um allt námsefnið. Kennslubækur eru: Folk Song Sight Singing Series, hefti 1-2; P. Hindemith: Elementary Training og G. Dandelot: Manuel Pratique.

Forkröfur: Miðpróf í tónfræði

Þekkingarviðmið:

• Syngja 2undir, 3undir og 4undir upp og niður frá gefnum tóni og geta greint sömu tónbil þegar þau eru slegin á píanó. • Stjórna tví-, þrí- og fjórskiptum takti samtímis því að syngja eða fara með hryn. • Syngja upp og niður alla dúrtónstigana á nótnanöfnum, frumhljómur gefinn. • Stökkva raddlega viðstöðulítið á milli allra tóna dúrtónstigans, frumhljómur gefinn. • Syngja einföld lög í dúr sbr. hefti 1 og 2 í Sight Singing Series. • Fara með einfaldan 2ja radda hryn sbr. kafla III í Elementary Training. • Skrifa niður eftir heyrn einföld lög annars vegar og hins vegar einfaldan hryn.



Leikniviðmið:

• Hafa ofantalin þekkingaratriði þrautalaust á valdi sínu í músíkölsku samhengi. • Geta farið hnökralítið með þær æfingar sem settar eru fyrir. • Geta skráð vandkvæðalítið eftir heyrn þau dæmi sem leikin eru.



Hæfniviðmið:

• Geta skráð vandkvæðalítið eftir heyrn þau dæmi sem leikin eru. • Geta yfirfært hryn og tóna yfir á rittákn. • Geta heyrt ritaða tónlist og ritað heyrða.



Námsmat: Námsmat byggir á lokaprófi auk verkefna sem dreifast yfir önnina. Nánari upplýsingar um uppbyggingu námsmatsins má finna í kennsluáætlun frá kennara sem nemendur fá afhenta í upphafi áfangans.

Til baka í áfangayfirlit.