Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 5

Viðfangsefni: Læsi, greining, menningarsaga.

Lýsing: Í áfanganum er farið í helstu tónfræðileg þekkingaratriða sem skilgreind eru innan miðprófs tónfræðigreina og lýkur áfanganum með samræmdu miðprófi tónfræðigreina. Meðal efnisatriða áfangans má m.a. nefna nótnaritun, leiðbeinandi orð og merkingar, hryn, tóntegundir, tónbil, hljóma og grunnatriði hljómfræði. Lögð er rík áhersla á að þjálfa nemendur í hlustun og að byggja upp tónminni og hæfni þeirra í að geta greint og ritað niður eftir heyrn flóknari hrynmyndir, laglínur, tónbil og tóntegundir.<br /> Í áfanganum er jafnframt unnið að því að nemendur þekki og skilji ólík efnisatriði tónlistar, svo sem ólíkar tónlistarstefnur, stíla, form, tónblæi, tónstyrk, hraða, tónvefi, tónlengdir, tónhæðir og hljóma. Enn fremur er námið sett í sögulegt samhengi og tengt tónlist samfélagsins hverju sinni.<br /> Áfanganum lýkur með samræmdu miðprófi í tónfræðigreinum.

Forkröfur: Tónfræði Hraðferð 1.1

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu grunnundirstöðum almennrar nótnaritunar; ritreglum, orðum og táknum.
  • Helstu takttegundum, lengdargildum, hrynmyndum og grunnatriðum hljómfræði.
  • Helstu tóntegundum (dúr og moll – upp í 7 formerki, lýdískri, frýgískri ofl.).
  • Einkennum tónlistar frá ólíkum tónlistartímabilum allt frá miðöldum til 20. aldar.
  • Helstu hljóðfærum samtímans og samsetningu sinfóníuhljómsveita og annara hljóðfærahópagerða.


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nálgast tónlist út frá ólíkum efnisþáttum hennar.
  • Greina blæbrigðamun ólíkra tónlistartímabila.
  • Greina tóntegundir, hljóðfæri og helstu hljóðfærasamsetningar.


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Greina laglínur, hryn og tónbil eftir heyrn.
  • Skrásetja og tjá tónlistarlegar hugmyndir í nótur.
  • Greina eftir heyrn ólík tónlistartímabil, tóntegundir og hljóma.


Námsmat: Áfanganum lýkur með samræmdu miðprófi tónfræðigreina.

Til baka í áfangayfirlit.