Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 3

Viðfangsefni: Lífsleikni

Lýsing: Í áfanganum læra nemendur sálfræðilegar aðferðir til að hafa áhrif á eigin líðan og andlegan styrk. Fjallað verður um hvernig líðan tengist hugsunum og hvernig hafa má áhrif á hugsanir sínar og þá um leið líðan. Auk þess læra nemendur leiðir til sjálfsstyrkingar, að efla einbeitingu, takast á við streitu, vinna gegn kvíða og höndla depurð. Einnig verður komið inn á samskipti og samskiptahæfni. Gert er ráð fyrir að nemendur á fyrsta ári stúdentsbrautar stundi lífsleikni 1.1 á haustönn og 1.2 á vorönn.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á :

  • því hvernig hugsanir hafa áhrif á líðan og hegðun
  • nokkrum aðferðum sálfræðinnar til að efla sjálfsmynd og bæta einbeitingu
  • mismunandi leiðum til samskipta s.s. til að leysa ágreining; gagnrýna á uppbyggilegan hátt og taka við gagnrýni


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • greina mismunandi hugsanir og tilfinningar
  • bera saman mismunandi leiðir til að hafa áhrif á eigin líðan
  • meta áhrif samskipta á aðstæður og líðan


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að :

  • hafa áhrif á eigin líðan með sálfræðilegum aðferðum
  • leggja einfalt mat á eigin líðan út frá sálfræðilegum leiðum
  • beita einföldum leiðum til að bæta eigin sjálfsmynd, einbeitingu og almenna líðan


Námsmat: Áfanginn er símatsáfangi og áhersla lögð á mætingu í tíma þar sem stór hluti af vinnunni fer fram í minni hópum.

Til baka í áfangayfirlit.