Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Aukaforhljómar, gabblausnir, hljómframandi tónar, endar og tóntegundaskipti niður þrjú og fjögur formerki.

Lýsing: Lögð er enn frekari rækt við að þjálfa tæknileg atriði fjögurra radda sálmastíls með áherslu á tónmál J. S. Bach; um þriðjungi námstímans er varið til greiningar sálmalaga þessa tónskálds. Allt efni er kynnt og æft í tímum en nemendur standa skil á heimaverkefnum í hverri viku.

Forkröfur: Hljómfræði 2.1

Þekkingarviðmið:

• Þekkja aukaforhljóma, aukaforhljómastaðgengla og tilheyrandi undirforhljóma og þeirra staðgengla. • Þekkja fullminnkaða 7undarhljóminn, lausnir hans og gabblausnir. • Þekkja stækkaða hljóminn sem forhljómsstaðgengil. • Þekkja alla hljómframandi tóna, án eða með áherslu. • Þekkja alla aðalenda, hálfenda og kirkjuenda, staðgengla og afbrigði þessara enda og alla þessa enda tilflutta. • Þekkja tóntegundaskipti niður þrjú og fjögur formerki.



Leikniviðmið:

Hafa vald á ofangreindum þekkingaratriðum í hljómrænu díatónísku og krómatísku samhengi og geta beitt þeim í fjögurra radda tónbálki.



Hæfniviðmið:

• Geta samið hljómagang innan marka námsefnis með fjölbreyttum hljómskiptum, góðri lagrænni hreyfingu sóprans og bassa og viðeigandi endum. • Geta greint og borið skynbragð á sama efnivið í verkum annarra.



Námsmat: Skrifleg heimaverkefni alla önnina og skriflegt próf í lok hennar

Til baka í áfangayfirlit.