Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Sjöundarhljómar, minnkaði hljómurinn, tóntegundaskipti til heimahljóma.

Lýsing: Lögð er frekari rækt við að þjálfa tæknileg atriði fjögurra radda sálmastíls með áherslu á tónmál J. S. Bach. Allt efni er kynnt og æft í tímum en nemendur standa skil á heimaverkefnum í hverri viku.

Forkröfur: Hljómfræði 1.2

Þekkingarviðmið:

• Þekkja allar lausnir 7undarhljóma. • Þekkja lausnir minnkaðra þríhljóma á grannsæti • Þekkja tóntegundaskipti milli sammarka tóntegunda og upp og niður eitt formerki, þ.e. á heimahljóma í dúr eða moll utan minnkaða hljómsins. • Þekkja forhljómsstaðgengla. • Þekkja mun á díatóník og krómatík.



Leikniviðmið:

Hafa vald á ofangreindum þekkingaratriðum í hljómrænu díatónísku samhengi og geta beitt þeim í fjögurra radda tónbálki.



Hæfniviðmið:

• Geta samið hljómagang innan marka námsefnis með fjölbreyttum hljómskiptum, góðri lagrænni hreyfingu sóprans og bassa og viðeigandi endum. • Geta greint og borið skynbragð á sama efnivið í verkum annarra.



Námsmat: Skrifleg heimaverkefni alla önnina og skriflegt próf í lok hennar.

Til baka í áfangayfirlit.