Hæfniþrep: 2

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Molltónstigar, dúrtónstigar, sjöundarhljómar, þríhljómar, raddfærslureglur, endar.

Lýsing: Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði fjögurra radda sálmastíls 17du og 18du aldar og þar með tóntegundabundinnar notkunar þríhljóma og sjöundarhljóma. Allt efni er kynnt og æft í tímum en nemendur standa skil á heimaverkefnum í hverri viku. Stuðst er við kafla VII - X í kennslubókinni Hljómfræði I – Frumtök eftir Guðmund Hafsteinsson og Snorra Sigfús Birgisson.

Forkröfur: Hljómfræði 1.1

Þekkingarviðmið:

• Þekkja allar gerðir þríhljóma og sjöundarhljóma í grunnstöðu og öllum hljómhvörfum moll og dúr. • Þekkja helstu raddfærslureglur í moll og dúr. • Þekkja undirbúning og lausnir minnkaðra 5unda og 7unda. • Þekkja fullkominn, ófullkominn, fullgerðan og ófullgerðan aðalendi sem og gabbendi.



Leikniviðmið:

• Hafa vald á ofangreindum þekkingaratriðum í hljómrænu samhengi og geta beitt þeim í fjögurra radda tónbálki.



Hæfniviðmið:

• Geta samið hljómagang innan marka námsefnis með fjölbreyttum hljómskiptum, góðri lagrænni hreyfingu sóprans og bassa og viðeigandi endum. • Geta greint og borið skynbragð á sama efnivið í verkum annarra.



Námsmat: Skrifleg heimaverkefni alla önnina og skriflegt próf í lok hennar.

Til baka í áfangayfirlit.