Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Dúrtónstigar, þríhljómar, raddfærslureglur, endar (niðurlög).

Lýsing: Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði fjögurra radda sálmastíls 17du og 18du aldar og þar með tóntegundabundinnar notkunar þríhljóma. Allt efni er kynnt og æft í tímum en nemendur standa skil á heimaverkefnum í hverri viku. Stuðst er við kafla I – VI í kennslubókinni Hljómfræði I – Frumtök eftir Guðmund Hafsteinsson og Snorra Sigfús Birgisson.

Forkröfur: Miðpróf í tónfræði

Þekkingarviðmið:

• Þekkja allar gerðir þríhljóma í öllum stöðum í dúr. • Þekkja helstu raddfærslureglur í dúr. • Þekkja hinar þrjár gerðir hljómskipta. • Þekkja helstu gerðir aðalenda í dúr.



Leikniviðmið:

• Hafa vald á ofangreindum þekkingaratriðum og geta búið til fjögurra radda hljómaraðir þar sem þeim er beitt.



Hæfniviðmið:

• Geta samið hljómagang innan marka námsefnis með fjölbreyttum hljómskiptum og góðri lagrænni hreyfingu sóprans og bassa.



Námsmat: Skrifleg heimaverkefni alla önnina og skrifleg próf í lok hennar.

Til baka í áfangayfirlit.