Hæfniþrep: 2 (1.1, 1.2, 2.1., 2.2) og 3 (3.1, 3.2)

Einingafjöldi: 8

Viðfangsefni: Hljóðfæraleikur eða söngur á sviði klassískrar tónlistar.

Lýsing: Einkatímar í hljóðfæraleik eða söng. Einstaklingsmiðað nám þar sem verkefni eru valin eftir getu og þörfum hvers nemanda.

Forkröfur: Miðpróf í hljóðfæraleik eða grunnpróf í söng. Miðpróf í tónfræði.

Þekkingarviðmið:

Nemendur hafi öðlast þekkingu og skilning á:

  • tónbókmenntum sem skrifaðar hafa verið fyrir hljóðfærið.
  • stíl og túlkun ólíkra tónlistarstefna.
  • þekkingu til að staðsetja þau verk sem nemendi leikur í sögunni.
  • samfélagslegu hlutverki tónlistar á ólíkum tímum.
  • sögulegu samhengi verkanna sem unnin eru í áfanganum.


Leikniviðmið:

Nemendur hafi öðlast:

  • aukið vald á hljóðfæri sínu.
  • aukna tæknilega færni á hljóðfærið.
  • getu til það flytja tónverk í viðkomandi námsstigi á tónleikum. 


Hæfniviðmið:

Nemendur hafi hæfni til að:

  • túlka tónverk á viðkomandi námstigi á sannfærandi hátt.
  • koma fram á opinberum tónleikum.
  • túlka tónverk úr ólíkum stíltegundum á sjálfstæðan og skapandi hátt.


Námsmat: Nemendur þurfa að taka próf í lok hverrar annar í hljóðfæraleik. Jafnframt fá nemendur iðnieinkunn frá kennara þar sem almenn ástundun nemanda er metin. Auk þess þurfa nemendur að koma fram á tónleikum á hverri önn.

Til baka í áfangayfirlit.